Ísfélag hf. birtir ársuppgjör 2023 á miðvikudaginn kemur 27. mars 2024.

Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:15 en þá mun Stefán Friðriksson, forstjóri félagsins kynna uppgjör félagsins og fara yfir ástand og horfur.

Fjárfestakynningin verður eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://isfelag.is/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@isfelag.is.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Ísfélagsins, www.isfelag.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Jóhann Árnason í síma 488-1109 eða á fjarfestatengsl@isfelag.is